DVD frá Landsmóti í jólapakkann!

DVD frá Landsmóti í jólapakkann! Nú eru DVD diskarnir frá Landsmótinu á Vindheimamelum í sumar komnir út. Ţetta er meira en átta klukkustunda efni af

DVD frá Landsmóti í jólapakkann!

Nú eru DVD diskarnir frá Landsmótinu á Vindheimamelum í sumar komnir út. Þetta er meira en átta klukkustunda efni af bestu gæðingum og kynbótahrossum landsins.

Útgáfan skiptist í tvennt, hápunkta annars vegar og kynbótahross hins vegar. Hápunktarnir innihalda hápunkta mótsins eins og nafnið gefur til kynna, þ.e. gæðingakeppnina, bestu kynbótahrossin, ræktunarbú, mannlíf og margt fleira.

Kynbótapakkinn er í allt fjórir diskar og á þeim er að finna öll kynbótahross sem hlutu fullnaðardóm á mótinu. Er þeim raðað eftir flokkum og í stafrófsröð.

Þessi mikla heimild hefur mikið skemmtanagildi fyrir hestamenn og er því klárlega jólagjöfin í ár!

Diskana má kaupa í öllum hestavöruverslunum landsins sem og á skrifstofu LH.


Landsmót hestamanna

Reykjavík 25. júní - 1. júlí 2012