Hrossarækt.is styrkir SKB

Hrossarækt.is styrkir SKB Á morgun, laugardaginn 2. júlí mun Hrossarækt.is afhenda styrk til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, á landsmóti

Hrossarækt.is styrkir SKB

Styrkveitingin mun fara fram á flötinni við hlið stjórnstöðvar LM kl. 13.

Styrkurinn sem veittur verður er afrakstur söfnunar á vegum Hrossaræktar.is þar sem boðnir voru upp folatollar á Stóðhestaveislu í Ölfushöll sl.vetur og happdrættismiðar seldir í kjölfarið. Hrossaræktendur tóku málefninu mjög vel og rúmlega 50 stóðhestseigendur gáfu folatolla sem nýttir voru í uppboðið og happdrættið.

Hestamenn tóku málefninu ekki síður vel og útkoman verður kynnt á morgun þegar veglegur styrkur verður afhentur á stærstu hátíð hestamanna á Íslandi.

Allir velkomnir að vera viðstaddir afhendinguna!


Landsmót hestamanna

Reykjavík 25. júní - 1. júlí 2012