Iceland Express, Landssamband hestamannafélaga (LH) og Landsmót hestamanna (LM) hafa skrifað undir samstarfssamning og stuðning Iceland Express við LH og LM
næstu tvö árin. Samningurinn felur í sér að Iceland Express styrkir landslið hestamanna til þátttöku á Norðurlandamóti
í Svíþjóð í ágúst á þessu ári og á heimsmeistaramóti í Berlín árið 2013.
Að auki vinna Landssamband hestamannafélaga, Landsmót hestamanna og Iceland Express saman að því að auka fjölda erlendra ferðamanna sem
koma mun á Landsmót hestamanna sem fram fer í Reykjavík dagana 25. júní til 1. júlí á þessu ári. Búist er við
þrjú til fimm þúsund erlendum gestum á landsmótið, frá Norðurlöndunum, víðar úr Evrópu og norður
Ameríku en um eitt þúsund kynbótahross og gæðingar koma fram á mótinu.
Búist er við að allt að þrjú þúsund Íslendingar fari á Heimsmeistaramótið í Berlín. Þar hafa þeir
átt góðu gengi að fagna og eiga t.d. fimmfaldan heimsmeistara í tölti.
Samstarfsaðilar munu vinna saman að því að efla ferðamennsku í tengslum við íslenska hestinn og kynningu á honum erlendis. Vinsældir
íslenska hestsins á erlendri grundu aukast stöðugt og hann á stóran þátt í kynningu lands og þjóðar.
Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands hestamannafélaga og Þórunn Reynisdóttir framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Iceland Express skrifa undir samstarfssamning. Með þeim á myndinni eru Sigriður Helga Stefánsdóttir markaðsfulltrúi Iceland Express og Haraldur Örn Gunnarsson framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna.

Landsmót hestamanna ehf | Kt. 501100-2690 | Engjavegi 6 | 104 Reykjavík | Sími: 514 4030 |
Landsmót hestamanna