Jólaleikur Landsmóts

Jólaleikur Landsmóts Ţrátt fyrir ađ Nóvember sé rétt ađ hefjast er létt jólastemning ađ lćđast inn á skrifstofu Landsmóts. Viđ viljum ţví endilega minna á

Jólaleikur Landsmóts

Fönix á vetrardegi. Ljósm. Hilda K. Garđarsdóttir
Fönix á vetrardegi. Ljósm. Hilda K. Garđarsdóttir

Þrátt fyrir að Nóvember sé rétt að hefjast er létt jólastemning að læðast inn á skrifstofu Landsmóts. Við viljum því endilega minna á jólaleikinn okkar  sem fór í gang um leið og miðasalan hófst. Veglegir vinningar bíða í pottinum en allir seldir miðar fram að jólum fara sjálfkrafa í pottinn. Á Þorláksmessu fáum við okkur síðan smákökur, malt og appelsín og drögum út heppna vinningshafa. Það er til mikils að vinna því meðal vinninga eru flugmiðar til Evrópu með Icelandair, gjafabréf í Kringluna, leikhúsmiðar, inneign hjá N1, Mountain horse úlpa, hótelgisting á 2 nætur á Hilton Reykjavík Nordica og endurgreiðsla á keyptum landsmótsmiðum.  Potturinn bíður því stútfullur af glæsilegum vinningum sem væri ekki amalegt að fá sem auka jólagjafir þetta árið. Húrra fyrir því!

Svo eru bara 25 dagar í fyrsta sunnudag í aðventu, styttist í jólalögin!


Landsmót hestamanna

Reykjavík 25. júní - 1. júlí 2012