Ljósmyndir verðlaunaðar

Ljósmyndir verðlaunaðar Ljósmyndasamkeppni Canon og Landsmót í samstarfi við Nýherja stóð yfir alla Landsmótsdagana.

Ljósmyndir verðlaunaðar

Skilyrði var að myndirnar væru teknar á meðan Landsmótinu stæði og á mótssvæðinu. Yfir tvö hundruð myndir bárust í keppnina og voru margar þeirra ansi skemmtilegar og flottar og greinilegt að margir frambærilegir áhugaljósmyndarar hafi mætt á Landsmót.

Canon og Landsmót þakkar öllum þeim sem sendu inn mynd í keppnina og óskar vinningshöfum innlega til hamingju.

Verðlaunin voru glæsileg, allt frábærar hágæðavörur frá Canon og var það Sigurður Aðils sölustjóri Nýherja á Akureyri sem veitti verðlaunin.


3. sæti: Canon PIXMA iP4850 A4 ljósmyndaprentari - Herborg Vera og Helenda Ríkey Leifsdætur



2. Canon Ixus 210 IS Black stafræn myndavél - Brita Jonsson



1. Canon EOS 1000D DSLR myndavél - Sigríður Elka Guðmundsdóttir

Dómnefndina skipuðu þau Gígja Einarsdóttir ljósmyndari, Anna Fjóla Gísladóttir ljósmyndari og Sigurður Aðils sölustjóri Nýherja á Akureyri


Landsmót hestamanna

Reykjavík 25. júní - 1. júlí 2012