Félagar innan Landssambands hestamannafélaga og Bændasamtaka Íslands fá 20% afslátt af miðaverði í forsölu til 15.maí. Auk
þess fá N1 korthafar 1000 kr. afslátt af miðaverði. Hestamenn geta með notkun N1 kortsins styrkt sitt hestamannafélag en af hverjum seldum
eldsneytislítra rennur hálf króna til hestamannafélagsins.
Að auki verður hægt að versla Reykjavíkurpassa en sá passi veitir frían aðgang í strætó, á ýmis söfn og í
sundlaugar Reykjavíkurborgar, á meðan móti stendur.
Í kjölfar þess að miðasala hefur nú hafist fer Landsmót af stað með svokallaðan jólaleik en allir seldir miðar fram til jóla fara
sjálfkrafa í happdrættispott sem dregið verður úr á Þorláksmessu. Vinningarnir eru ekki af verri endanum en meðal þess sem í
boði er eru flugmiðar til Evrópu með Icelandair, inneign hjá N1, gjafabréf í Kringluna, leikhúsmiðar, Mountain horse úlpa,
hótelgisting í 2 nætur á Hilton Reykjavík Nordica og endurgreiðsla á keyptum landsmótsmiðum.
Flýtilyklar
Miðasala Landsmóts hestamanna 2012 er hafin!
17. október 2011

Landsmót hestamanna ehf | Kt. 501100-2690 | Engjavegi 6 | 104 Reykjavík | Sími: 514 4030 |
Landsmót hestamanna