Ræktunarbúin vöktu lukku

Ræktunarbúin vöktu lukku Sýningar ræktunarbúa vekja ávallt mikla lukku og er mikil stemning kringum þær.

Ræktunarbúin vöktu lukku

Á því varð engin breyting að þessu sinni. Ellefu frábær hrossaræktarbú komu og sýndu landsmótsgestum glæsilega hópa sína og brekkan var vel með á nótunum. Á meðan gestir horfðu á glæsta gæðinga á vellinum gátu þeir kosið það bú sem þeim fannst glæsilegast í símakosningu.

Það ræktunarbú sem flest atkvæði hlýtur í símakosningunni mætir svo aftur annað kvöld og verður heiðrað sérstaklega á kvöldvökunni.


Landsmót hestamanna

Reykjavík 25. júní - 1. júlí 2012