Sigursteinn og Alfa sigruðu töltið

Sigursteinn og Alfa sigruðu töltið Sigursteinn Sumarliðason átti frábæra sýningu á glæsihryssunni Ölfu frá Blesastöðum 1A í A-úrslitunum í töltinu í kvöld

Sigursteinn og Alfa sigruðu töltið

Sigursteinn og Alfa í sveiflu! Mynd: Dalli.is
Sigursteinn og Alfa í sveiflu! Mynd: Dalli.is
Annar á eftir honum var landsmótssigurvegari töltins á LM2008, Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi með 8,78 og þriðji Steingrímur Sigurðsson á Mídasi frá Kaldbak með 8,67.

Þessi úrslit voru mögnuð og stemningin í brekkunni gríðarleg og voru tilþrif verðlaunum með góðu klappi og hrópum. Það hlýtur að vera frábær tilfinning fyrir knapa að ríða á velli frammi fyrir mörg þúsund manns í brekkunni.

Bara frábært... og veislan heldur áfram á morgun!

Tölt A-úrslit
Sæti           Keppandi               
1           Sigursteinn Sumarliðason / Alfa frá Blesastöðum 1A        8,94        
2           Viðar Ingólfsson / Tumi frá Stóra-Hofi        8,78        
3           Steingrímur Sigurðsson / Mídas frá Kaldbak        8,67        
4           Jakob Svavar Sigurðsson / Árborg frá Miðey        8,28        
5           Hulda Gústafsdóttir / Sveigur frá Varmadal        8,22        
6           Halldór Guðjónsson / Nátthrafn frá Dallandi        8,22        


Landsmót hestamanna

Reykjavík 25. júní - 1. júlí 2012