Stjörnur urðu til

Stjörnur urðu til Þá er 19. landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði lokið. Mótið fór gríðarlega vel fram og er góður rómur gerður að því, bæði

Stjörnur urðu til

Þá er 19. landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði lokið. Mótið fór gríðarlega vel fram og er góður rómur gerður að því, bæði hvað varðar hestakost, aðstöðu, skipulag og framkvæmd.

Fremur svalt var í veðri fyrstu daga mótsins en svo snérust veðurguðirnir á okkar band og voru með okkur af heilum hug allt þar til yfir lauk á sunnudeginum.

Gestir eru sammála um að hestakosturinn hafi verið stórkostlegur, bæði í gæðingakeppninni sem og í kynbótageiranum. Stjörnur urðu til, heimsmeistarar meira að segja og það er nú saga til næsta bæjar.

Spuni frá Vesturkoti, Finns Ingólfssonar og fjölskyldu, er hæst dæmda íslenska kynbótahross í heimi. Svo einfalt er það. Spuni toppaði á réttum tíma, á Landsmóti hestamanna, frammi fyrir 8000 manns! Greinilegt var að hesturinn var vel taminn og þjálfaður af Ólafi Ásgeirssyni tamningamanni í Vesturkoti og síðan snilldarvel sýndur af Þórði Þorgeirssyni. Sennilega flottasta sýning á kynbótahrossi til þessa.

Spuni stal óneitanlega senunni á kynbótakantinum en mörg frábær hross komu fram á mótinu. Þar má nefna hæfileikabombur í röðum stóðhesta eins og Kiljan frá Steinnesi, Frakk frá Langholti, Mátt frá Leirubakka, Héðinn frá Feti og Ugga frá Bergi. Hryssurnar voru að sama skapi frábærar. Þar skal fyrsta nefna Þóru frá Prestsbæ sem kom efst allra kynbóthrossanna inn á mót en hún er með 9,07 fyrir hæfileika. Hið jarpa hestagull Þrift frá Hólum er eftirtektarverð, með 8,81 fyrir sköpulag. Ekki er hægt að sleppa þeim Maríu frá Feti, Ronju frá Hlemmiskeiði 3, Rauðhettu frá Kommu, Kolku frá Hákoti, Spá frá Eystra-Fróðholti, Úlfhildi frá Blesastöðum 1A, Furu frá Hellu og Vissu frá Lambanesi úr þessari upptalningu. Allt mjög áhugaverðar hryssur og sérstaklega verður gaman að sjá þær ungu á næsta landsmóti sem er nú bara rétt handan við hornið.

Það er alltaf hátíðleg stund þegar Sleipnisbikarinn er afhentur. Í þetta skiptið kom hann í hlut Gára frá Auðsholtshjáleigu sem stóð efstur en þrír aðrir hestar hlutu heiðursverðlaun. Í öðru sæti varð Aron frá Strandarhöfði, því þriðja Hágangur frá Narfastöðum og í fjórða sæti Adam frá Ásmundarstöðum. Tíu hestar hlutu fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Efstur stóð Arður frá Brautarholti, annar Álfur frá Selfossi og þriðji Blær frá Torfunesi.

Gestirnir í brekkunni fá jafnan gæsahúð af aðdáun við að sjá börn á hestbaki á glæstum gæðingum. Börnin, unglingarnir og ungmennin voru frábærlega vel ríðandi. Þó ung séu að árum, eru þetta oft knapar með mikla keppnisreynslu og fær í flestan sjó. Þetta eru krakkar með rosalega mikla hestadellu og þess vegna komust þau inn á Landsmót á gæðingum sínum.

Töltið á Landsmóti er alltaf mikil veisla fyrir augað og í ár varð engin breyting þar á. Þar voru reyndir kappar á ferð með keppnisreynda töltara, t.d. Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi en þeir sigruðu tölti á LM 2008, Halldór Guðjónsson og Nátthrafn frá Dallandi, Sigurbjörn Bárðarson og Jarl frá Mið-Fossum, Mídas frá Kaldbak og Steingrímur Sigurðsson og Sigursteinn Sumarliðason og Alfa frá Blesastöðum 1A. Það var einmitt hin magnaða hryssa Alfa sem sigraði hina nafntoguðu töltara, sannkölluð gæðingshryssa þar á ferð en hún endaði einnig í 3. sæti í B-flokknum.

Klárhrossin voru frábær og úrslitin algjör veisla þar sem gæðingarnir fengu að njóta sín og sína sínar bestu hliðar. Sýndu þau hægt tölt, brokk og greitt tölt í úrslitunum. Hjá sumum lá styrkleikinn í hæga töltinu, hjá öðrum í brokkinu og/eða greiða töltinu. En allt voru þetta gæðingar sem falla vel inn í skilgreiningu okkar á íslenska gæðingnum; viljug og framsækin með mikið fas og fegurð í reið. Kjarnorka frá Kálfholti hreppti gullið í B-flokknum. Afburða gæðingshryssa og nú var komið að henni að sigra. Sigurður Sigurðarson var knapi hennar að venju en eigandi Kjarnorku er kona hans, Sigríður Arndís Þórðardóttir.

Alhliða hrossin voru mjög góð, spennandi hross þar fremst í flokki. Óumdeilanlegur sigurvegari var stóðhesturinn Ómur frá Kvistum, sem sýndi mikla getu á gangtegundum og frábært skeið, enda með 9,5 fyrir skeið í kynbótadómi. Knapi á Ómi var Hinrik Bragason og sýndi hann hestinn fallega og átakalaust. Ræktandi Óms er Kristjón L Kristjánsson en eigandi Kvistir ehf.

Sumarið er tíminn. Til að afreka. Það sýndi sig á Landsmótinu á Vindheimamelum. Við hestamenn höldum glöð út í sumarið aftur og tökumst á við okkar verkefni með sól í hjarta.

Landsmót ehf. óskar ræktendum, sigurvegurum og hestamönnum öllum til hamingju með frábært landsmót. Næsta verkefni er ekki langt undan, Landsmót 2012 í Reykjavík. Sjáumst þá!


Landsmót hestamanna

Reykjavík 25. júní - 1. júlí 2012