03. júlí 2011
Þórður Þorgeirsson fékk viðurkenningu frá Félagi tamningamanna fyrir reiðmennsku sína á mótinu. Hann sýndi hvorki
meira né minna en 26 hross hér á Vindheimamelum, öll í röðum kynbótahrossa. Hann sýndi m.a. heimsmeistarann Spuna frá Vesturkoti
í 9,25 fyrir hæfileika sem gerir hann að hæst dæmda íslenska kynbótahrossi í heimi.
Hann þótti skara fram úr með frábærar sýningar í kynbótabrautinni, háttvís, stundvís og faglegur.
Það var Sigrún Ólafsdóttir formaður Félags tamningamanna afhenti Þórði verðlaunin.

Landsmót hestamanna ehf | Kt. 501100-2690 | Engjavegi 6 | 104 Reykjavík | Sími: 514 4030 |
Landsmót hestamanna