Þó frábæru Landsmóti 2011 á Vindheimamelum sé aðeins nýlokið, er undirbúningur LM 2012 í Reykjavík kominn
á fullt skrið enda stutt í það mót.
Þó einhver atriði hafi náðst að skipuleggja svolítið samhliða LM 2011, þá er í gríðarlega mörg horn að
líta svo nú spýta starfsmenn og stjórn Landsmóts bara í lófana og halda áfram því skemmtilega starfi sem framkvæmd og
skipulagning landsmóta er.
Svæðið í Víðidalnum er farið að taka á sig ansi magnaða mynd og stefna Fáksmenn á að klára þær
framkvæmdir sem nauðsynlegar voru á svæðinu, nú á haustdögum. Þar er m.a. verið að klára að tyrfa melinn sunnan við
kappreiðavöllinn, þar sem heilmikið pláss er nú fyrir tjaldstæði. Einnig er búið að lengja áhorfendabrekkuna við
Hvammsvöllinn og tyrfa hana og jafna út melinn vestan við völlinn þar sem stúka verður sett upp á mótinu. Svo það er
ýmislegt í gangi hjá staðarhöldurum í Víðidal, s.s. fegrun svæðisins með trjám og gróðri og næsta sumar
verður farið í enn frekari fegrun dalsins.
Flýtilyklar
Undirbúningur á fullt
26. ágúst 2011

Landsmót hestamanna ehf | Kt. 501100-2690 | Engjavegi 6 | 104 Reykjavík | Sími: 514 4030 |
Landsmót hestamanna