02. júlí 2011
Styrkurinn er afrakstur söfnunar á vegum Hrossaræktar.is þar sem boðnir voru upp folatollar á Stóðhestaveislu í Ölfushöll sl.vetur og happdrættismiðar seldir í kjölfarið.
Hrossaræktendur tóku málefninu mjög vel og rúmlega 50 stóðhestseigendur gáfu folatolla sem nýttir voru í uppboðið og happdrættið. Hestamenn tóku málefninu ekki síður vel og útkoman var veglegur styrkur upp á kr. 2.015.000 sem afhentur var á stærstu hátíð hestamanna á Íslandi í dag.
Hrossarækt.is er fyrirtæki sem á og rekur stóðhestavefinn stodhestar.com. Að auki stendur Hrossarækt.is fyrir stóðhestasýningum norðan og sunnan heiða og gefur út Stóðhestabók. Í vetur kviknaði sú hugmynd hjá aðstandendum vefsins að standa fyrir söfnun til handa góðu málefni og leita þar liðsinnis hrossaræktenda í landinu. Fyrir valinu varð að styrkja Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna sem hefur um árabil stutt krabbameinsjúk börn og fjölskyldur þeirra.
Viðstaddir afhendinguna voru m.a. Hinrik Bragason frá Hestvit ásamt stóðhestinum Héðni frá Feti og Helgi Eggertsson með Stála frá Kjarri, en þeir voru meðal þeirra sem lögðu sitt til fjáröflunarinnar.
Við styrknum tók fjölskylda hestafólks sem þekkir vel til starfs félagsins en eldri sonur þeirra var skjólstæðingu félagsins á sínum tíma en hefur nú náð fullum bata. Þau Rannveig Árnadóttir, Brynjar Jón Stefánsson og Brynjar Jón yngri tóku við styrknum fyrir hönd Styrktarfélagsins, en fyrir hönd Hrossaræktar.is afhenti ung hestakona Nadía Sif Gunnarsdóttir styrkinn.
Hulda G. Geirsdóttir, fjölmiðlafulltrúi Hrossaræktar.is sagði það mikla ánægju að geta styrkt þetta góða málefni og vildi þakka þeim fjölmörgu hrossaræktendum sem gáfu folatolla til söfnunarinnar sem og hestamönnum sem voru duglegir að styrkja málefnið.
Á mynd eru frá afhendingu styrksins. Frá vinstri, Brynjar Jón Stefánsson, Rannveig Árnadóttir, Hinrik Bragason með Héðinn frá Feti, Hulda G. Geirsdóttir, Guðmundur Björgvinsson, Magnús Benediktsson, Björn Kristjánsson og Snorri Kristjánsson frá Hrossarækt.is og Helgi Eggertsson með Stála frá Kjarri. Fyrir framan standa Brynjar Jón yngri og Nadía Sif Gunnarsdóttir með ávísunina á milli sín.

Landsmót hestamanna ehf | Kt. 501100-2690 | Engjavegi 6 | 104 Reykjavík | Sími: 514 4030 |
Landsmót hestamanna