Fjölmiðlar

Umsókn um fjölmiðlapassa Hér fyrir neðan er eyðublað sem fjölmiðlafólk getur sótt/hlaðið niður og þannig sótt um blaðamannapassa fyrir Landsmót 2012.

Fjölmiðlar

Umsókn um fjölmiðlapassa
Hér fyrir neðan er eyðublað sem fjölmiðlafólk getur sótt/hlaðið niður og þannig sótt um blaðamannapassa fyrir Landsmót 2012. Senda skal umsóknina til Hildu Karenar Garðarsdóttur, hilda@landsmot.is. Sjórn Landsmóts ehf. og fjölmiðlafulltrúi fara yfir allar umsóknir og ákveða hverjar skulu samþykktar og hverjum hafnað. Þess vegna er mikilvægt að vanda umsóknina í hvívetna. Frekari upplýsingar má finna á umsóknareyðublaðinu sjálfu.

Umsókn um fjölmiðlapassa

Til að skoða og prenta PDF skjöl þarftu að hafa Adobe Reader á tölvunni þinni. Á þessari vefsíðu geturðu sótt forritið ókeypis: www.adobe.com

Þegar umsókn hefur verið afgreidd og samþykkt fær umsækjandi tölvupóst með frekari upplýsingum.

Vinnuaðstaða
Á svæðinu verður sérstakt vinnuherbergi fyrir fjölmiðlafólk þar sem hægt verður að komast í þráðlaust netsamband  en gert er ráð fyrir því að fjölmiðlamenn komi með sínar tölvur sjálfir.

Ljósmyndarar
Aðgangur ljósmyndara að keppnisvöllum verður að einhverju leyti takmarkaður, þ.e. einungis ákveðinn fjöldi ljósmyndara mun geta verið inni á vellinum í einu. Nánari upplýsingar um þetta og fleiri mál er varða mótið verða kynntar á mótsstað. 

Niðurhal á merki Landsmótspdf

Tengiliður blaðamanna og ljósmyndara
Hilda Karen Garðarsdóttir
Netfang: hilda@landsmot.is
Sími: 514 4034 & 897 4467

Landsmót hestamanna

Reykjavík 25. júní - 1. júlí 2012