Eigendur Landsmóts ehf. eru Landssamband hestamannafélaga (LH) sem eiga 2/3 hluta í félaginu ásamt Bændasamtökum Íslands með 1/3 hluta
aðildar.
Ákveðið var á haustdögum þegar undirbúningur Landsmóts 2010 hófst að bjóða aðildarfélögum eigenda verulegan afslátt af miðaverði.
Til að slíkt væri gerlegt var ráðist í að smíða öflugan gagnagrunn sem vistar alla aðildarfélaga LH og BÍ. Þurfa félagar að slá inn kennitölu sinni til að nálgast miða á vildarkjörum LH/BÍ EFTIR að fjöldi miða osfrv. hefur verið valið í kerfinu.
Þess má til gamans geta að þegar félagatal LH og BÍ voru samkeyrð voru 1.530 félagar í bæði hestamannafélagi og Bændasamtökunum! Samtals eru þá um 14.500 einstaklingar á skrá í LH/BÍ gagnagrunni Landsmóts.
Hver félagi í LH/BÍ getur aðeins einu sinni keypt kennitölu sinni í kerfinu!
Þegar miði er keyptur á netinu fær viðkomandi senda kvittun í tölvupósti sem síðan þarf að framvísa á leið á mótsstað á völdum stöðum (kynnt nánar síðar) þar sem hægt verður að nálgast aðgangsarmböndin.
ATH: aðgangsarmbönd eru einungis afhent gegn kvittuninni sem félagsmenn fá senda í tölvupósti eftir að miði hefur verið keyptur og algjört skilyrði er að framvísa skilríkjum þegar armbönd eru sótt.
Komi upp tilfelli þar sem aðilar notfæra sér kennitölu félagsmanns verður tekið á því skv. landslögum enda verður hægt að rekja IP tölur.
Er það von mótshaldara að þetta nýja fyrirkomulag mælist vel fyrir hjá hestamönnum og öllum bændum um land allt!
Verðskrá og vildarkjör LH/BÍ félaga má nálgast HÉR og almenna verðskrá, þ.e. fyrir þá sem ekki eiga aðild að LH/BÍ er að finna HÉR

Velkomin á Landsmót 2010!