Komdu á Landsmót hestamanna 2010
og taktu virkan þátt í ævintýrinu!
Umsóknareyðublað (word)
og taktu virkan þátt í ævintýrinu!
Umsóknareyðublað (word)
Landsmót hestamanna er einn stærsti viðburður sem haldinn er hérlendis og krefst því fjölda vinnufúsra handa til að mótið gangi sem best fyrir sig.
Mótið stendur yfir dagana 27. júní – 4. júlí 2010 á Vindheimamelum í Skagafirði.
Hér gildir hið fornkveðna að margar hendur vinna létt verk og við hlökkum til að fá þig í teymið.
Þér stendur til boða:
- Að starfa í skemmtilegum félagsskap við einn viðamesta viðburð sem haldinn er á Íslandi, þar sem hraði, snerpa og vinnugleði ræður ríkjum
- Frír aðgangur að Landsmóti alla dagana
- Frítt fæði á meðan þú ert á vakt
- Allir sjálfboðaliðar fá fallegan bol merktan Landsmóti 2010
- Standir þú þig vel, að mati starfsmannastjóra, erum við einnig fús að veita þér meðmæli sé þeirra óskað
- Sjálfboðaliðum gefst kostur á að tjalda á afgirtu svæði þar sem ríkir ró og friður
- Að þú hafir brennandi áhuga og búir yfir ómældri vinnugleði við að starfa á Landsmóti 2010
- Að þú sért 18 ára eða eldri
- Að þú hafir góð tök á enskri tungu
- Að þú sért reiðubúinn að gang í hin ýmsu störf skv. ákvörðun starfsmannastjóra
- Lágmarksvinnuframlag eru 3 x 6 klst. vaktir yfir allan mótstímann, þ.e. að skilað sé af sér a.m.k. 18 klst vinnuframlagi yfir vikuna sem Landsmót stendur yfir
- Að þú sækir fund þar sem farið verður yfir vinnureglur á Landsmóti 2010
Áætlaðar vaktir eru frá og með laugardeginum 26. júní fram til þriðjudagsins 6. júlí, eða tveimur dögum eftir að Landsmóti lýkur.
1. Vakt: 07:00 - 13:00
2. Vakt: 13:00 - 19:00
3. Vakt: 19:00 - 01:00
Það er alltaf rúm fyrir hjálpfúsar hendur og hafir þú brennandi áhuga á að létta undir með okkur og uppfyllir skilyrðin hér að ofan ertu velkomin/n í teymið.
Við bendum þér á að fylla út eyðublaðið HÉR og senda á netfangið job@landsmot.is.
Við leitumst við að halda umsækjendum upplýstum jafnt og þétt um framgang mála, alveg þar til að stóru stundinni kemur!
Sjáumst á Landsmóti 2010!









