Skipurit Landsmóts hestamanna ehf.
Landsmót er í dag einkahlutafélag (ehf) að 2/3 hluta í eigu Landssambands hestamannafélaga og að 1/3 hluta Bændasamtaka Íslands. Félagið var stofnað árið 2001 með það að markmiði að vera rekstaraðili Landsmótanna.
Fyrsta mótið sem einkahlutafélagið stóð að var árið 2002 á Vindheimamelum í Skagafirði og hefur rekstur mótanna verið með þeim hætti síðan.









