Forsala aðgöngumiða stendur til 1. maí 2010 en eftir það hækkar miðaverðið, 
sbr. ALMENN VERÐSKRÁ og VERÐSKRÁ LH / BÍ AÐILDARFÉLAGA.
Unnt er að kaupa miða á Landsmót alveg fram að mótsbyrjun bæði hér á netinu og er nær dregur einnig á nokkrum afgreiðslustöðvum N1 um land allt. Við inngangshlið á Vindheimamela verður einnig miðasala. Ath. dagmiða er einungis hægt að kaupa í Varmahlíð og við inngangshlið.

sbr. ALMENN VERÐSKRÁ og VERÐSKRÁ LH / BÍ AÐILDARFÉLAGA.
Unnt er að kaupa miða á Landsmót alveg fram að mótsbyrjun bæði hér á netinu og er nær dregur einnig á nokkrum afgreiðslustöðvum N1 um land allt. Við inngangshlið á Vindheimamela verður einnig miðasala. Ath. dagmiða er einungis hægt að kaupa í Varmahlíð og við inngangshlið.
Ávinningur af því að kaupa
miða í forsölu á netinu er margþættur
- Miðarnir eru töluvert ódýrari fyrir 1. maí nk. eins og dæmin hér að neðan sýna.
Dæmi 1 (almenn verðskrá): Fjölskylda sem samanstendur af hjónum með 2 unglinga (börn 13 ára og yngri fá frítt inn!) spara í heildina 14.000 kr. með því að kaupa miða í forsölu.Dæmi 2 (vildarkjör LH/BÍ félaga): Fyrir aðildarfélaga í LH/BÍ munar 25% á vikupassa í forsölu og vikupassa sem keyptur er eftir 1. maí, eða 3.000 kr. Munurinn á almennu miðaverði eftir forsölu og LH/BÍ miða sem keyptur er í forsölu er hins vegar 6.000 krónur á mann. Því fá t.d. hjón sem eru aðildarfélagar og njóta vildarkjara LH/BÍmeð því að kaupa miða í forsölu og á vildarkjörum LH/BÍ, 12.000 kr. afslátt sé miðað við almennt miðaverð eftir að forsölu lýkur.
- Hjólhýsastæði með aðgengi að rafmagni sem og stúkusæti eru einungis seld hér á netinu og þar gildir ,,fyrstur kemur, fyrstur
fær!".

- Allir miðar sem keyptir eru í forsölu lenda í happdrættispotti þar sem í boði eru veglegir vinningar frá Landsmóti og samstarfsaðilum mótsins. Þú
gætir því endað með að fá miðana sem þú hefur keypt í forsölu endurgreidda frá Landsmóti, sbr. yfirlitið
hér að neðan yfir þá vinninga sem í boði eru.
- Þegar þú kaupir á netinu getur þú framvísað kvittuninni á sérvöldum afgreiðslustöðvum N1 á leiðinni á mótsstað og fengið þar aðgangsarmband/-bönd afhent. Þannig komum við í veg fyrir að ,,allir" mótsgestir dvelji lengi í bifreiðum sínum við inngangshlið þegar á mótsstað er komið, við að kaupa miða.









