
Landsmót hestamanna árið 2010 á Vindheimamelum í Skagafirði er hið 19. í röðinni. Landsmót hafa verið haldin áður fimm sinnum á keppnissvæðinu á Vindheimamelum eða árin 1974, 1982, 1990, 2002 og 2006.
Frá upphafi eða frá því að Landsmót var fyrst haldið á Þingvöllum, hefur mótið verið einn
stærsti íþróttaviðburður landsins.
Fjöldi upplýsinga þurfa að berast bæði til keppenda, gesta og starfsfólks Landsmóts. Vinsamlegast leitið upplýsinga í tenglunum hér til vinstri.
Gagnlegar upplýsingar um Norðvesturland má finna á heimasíðu Ferðavefs Norðurlands vestra sem og á
síðunni visitskagafjordur.is
Landsmót - næsti bær við himnaríki?

Mynd: Ragnar Th.
Það er hánótt, en samt er næstum því eins bjart og dagur væri. Sólin neitar að setjast. Hún felur sig kannski augnablik á
bak við fjall eða hæð, en svo kemur hún aftur og sveipar nóttina dulúðlegri birtu. Ég fæ á tilfinninguna að ævintýri
sé á næsta leiti. Þetta var stórkostlegur dagur. Mér finnst ég hafa séð öll bestu hross heimsins. Íslenski hesturinn er
auðvitað sá langfallegasti. Á morgun ætla ég að kaupa mér folald, hryssu. Ég er alveg handviss um að gæfan mun ganga í lið
með okkur. Hún mun verða ein af þeim bestu og gefa mér marga frábæra gæðinga.
Ég stíg út úr tjaldinu og út í nóttina — á vit ævintýranna. Kannski hitti ég gamla vini? Kannski nýja? Kannski
ástina? Tónlistin frá stóra hvíta tjaldinu berst út í bjarta sumarnóttina. Fólk situr fyrir utan tjöld og hjólhýsi
í daufu ljósinu frá prímusnum, spjallar, syngur! Næstum allir kunna að syngja. Hross drúpa höfði í litlum hólfum rétt
hjá, sátt og örugg. Hvar er ég eiginlega? Þetta hlýtur að vera himnaríki!









