Kæru hestamenn!
Nú er hægt að kaupa vikupassa á Landsmót Hestamanna sem haldið verður á Hellu 6. - 12. júlí 2020 og um leið styrkt það hestamannafélag sem þú ert skráður í.
Með því að kaupa í forsölu í gegnum link viðeigandi félags hér að neðan renna 1.000 kr til þess. Miðaverð í forsölu er aðeins 16.900 kr til áramóta.
Tökum höndum saman - styðjum félögin og tryggjum okkur um leið miða á Landsmót hestamanna 2020 á besta mögulega verði.