Aðgengi fatlaðra

Landsmót gerir sitt allra besta til að öllum gestum líði vel á Landsmótssvæðinu. Ákveðin stæði hafa verið tekin frá á svæðinu, við báða vellina, þar sem fatlaðir munu geta lagt bílum sínum og horft á keppnina og kynbótasýningar mótsins á besta stað. 

Þeir einstaklingar sem telja sig eiga rétt á þessum stæðum, þurfa að koma á skrifstofu mótsins með sinn venjulega bílastæðapassa fyrir fatlaða, og sækja um slíkan passa á mótinu. Passinn er límmiði sem þarf að límast í hornið á framrúðu bílsins sem viðkomandi verður á. 

bílastæði fatlaðra