Það ræktunarbú sem flest atkvæði hlýtur á föstudagskvöldi ávinnur sér þann heiður að koma fram á laugardagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku.
Mikilvæg atriði varðandi ræktunarbússýningar:
Ræktunarbúi ársins 2025 er boðin þátttaka sem og keppnishestabúi ársins 2025. Skráningargjaldið er kr. 250.000.
Þeir hrossaræktendur sem hafa áhuga á að koma fram með sinn hóp eru beðnir að senda inn umsókn um slíkt og athugið að gefa upplýsingar um hvaða hross er stefnt með á sýninguna.
Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Umsóknir skulu sendar á netfangið hilda@landsmot.is