Umsókn um fjölmiðlapassa
Hér fyrir neðan má finna google forms eyðublað sem fjölmiðlafólk getur sótt/hlaðið niður og þannig sótt um blaðamannapassa fyrir Landsmót 2026. Allar nánari upplýsingar gefur Bryndís Rún Baldursdóttir, fjölmiðlafulltrúi, press@landsmot.is. Stjórn Landsmóts og fjölmiðlafulltrúi fara yfir allar umsóknir og ákveða hverjar skulu samþykktar og hverjum hafnað. Þess vegna er mikilvægt að vanda umsóknina í hvívetna. Frekari upplýsingar má finna á umsóknareyðublaðinu sjálfu.
Umsóknum skal skila inn fyrir 17. júní 2026. Eftir þann tíma verður ekki tekið við umsóknum. Þegar umsókn hefur verið afgreidd og samþykkt fær umsækjandi tölvupóst með frekari upplýsingum.
Vinnuaðstaða
Á svæðinu verður aðstaða fyrir fjölmiðlafólk þar sem hægt verður að komast í þráðlaust netsamband en gert er ráð fyrir því að fjölmiðlamenn komi með sínar tölvur sjálfir. Landsmót á Hólum tekur enga ábyrgð á myndavélum, tölvum eða öðru sem kann að verða skilið eftir í vinnuaðstöðunni.
Ljósmyndarar
Aðgangur ljósmyndara að keppnisvöllum verður að einhverju leyti takmarkaður, þ.e. einungis ákveðinn fjöldi ljósmyndara mun geta verið inni á vellinum í einu. Nánari upplýsingar um þetta og fleiri mál er varða mótið verða kynntar á mótsstað.
Eyðublað - umsókn um blaðamannapassa á LM2026
https://forms.gle/J5p8sZ9owoXY45FD6
Tengiliður blaðamanna og ljósmyndara
Bryndís Rún Baldursdóttir
press@landsmot.is
s. 821 8016