Sunnudaginn 12. júlí, að loknu Landsmóti hestamanna, gefst gestum einstakt tækifæri til að kynnast þeirri ríku hefð hrossaræktar og menningar sem Skagafjörður er þekktur fyrir. Þá verður haldinn Dagur menningar og ræktunar í Skagafirði, þar sem fjölmörg hrossaræktarbýli og menningarsetur víðs vegar um héraðið opna dyr sínar og bjóða gesti velkomna.
Skipuleggjendum hlakkar til að taka á móti gestum og bjóða þeim að upplifa eftirminnilegan dag þar sem íslensk hrossarækt, menning og gestrisni Skagafjarðar verða í forgrunni. Fyrir þá sem sækja Landsmót er þetta kjörið tækifæri til að ljúka ferðinni með því að kynnast enn betur því héraði sem margir telja hjarta íslenskrar hestamennsku.
Opin hús – Hrossaræktarbú (stendur yfir í ca 2 klst)
- Kálfsstaðir 11:00
- Nautabú, Hestklettur 11:00
- Neðri-Ás II 11:00
- Hof á Höfðaströnd 12:00
- Þúfur 12:00
- Kolkuós 12:00
- Varmaland 13:00
- Syðra-Skörðugil 13:00
- Varmilækur 1 14:00
- Bjarmaland, Hrímnishöllin 14:00
- Tunguháls II 14:00
Aðrir samstarfsaðilar:
- Sögusetur íslenska hestsins 10:00 – 18:00
- Starrastaðir - rósarækt og kaffihús 13:00 – 17:00
- Lýtingsstaðir – sögusetur íslenska fjárhundsins og torf hesthúsin 13:00 – 17:00
- Stórhóll - bændamarkaður 13:00 – 17:00