Skráning keppenda

Mótið er nr. IS2026LM0175. Hér má finna hagnýtar upplýsingar.

Gæðingakeppni

Hvert hestamannafélag ber ábyrgð á skráningu sinna knapa og eins að senda upplýsingar um varahesta og knapa. Í sérstakri forkeppni hefur knapinn val upp á hvora höndina hann vill ríða og því mikilvægt að það sér rétt skráð.

Hvert hestamannafélag ber ábyrgð á því að skráningargjöld séu greidd og mikilvægt er að senda kvittun á skraning@landsmot.is svo skráningin sé gild. Skráningargjaldið er kr. 16.500 í alla gæðingaflokka.

Til viðbótar þeim hestum sem vinna sér þátttökurétt á Landsmóti í öllum flokkum í gegnum úrtökur hestamannafélaganna, fá efstu 6 hestar á stöðulistum sem ekki komust inn í gegnum úrtökur hjá sínum félögum, þátttökurétt á Landsmóti. Staða á stöðulistum er tekin að loknum úrtökum hestamannafélaganna sem haldnar eru fyrir kl. 23:59 þann 21. júní 2026. Haft verður samband við þá knapa sem komast inn í gegnum stöðulista.

Tölt, skeið & sýningargreinar

Þátttökuréttur í tölti og kappreiðum ræðst af stöðulistum löglegra móta sem lokið er fyrir 21. júní 2026. Hestar sem taka þátt í gæðingakeppni hafa einnig rétt á að taka þátt í íþróttagreinum mótsins séu þeir inni á stöðulistum.

Hver knapi ber ábyrgð á sinni skráningu út frá stöðulista sem birtur verður á heimasíðu LH, Landsmóts og öllum helstu vefmiðlum 22. júní. Knapar eru beðnir um að fylgjast vel með og bregðast skjótt við skráningu. Hver knapi ber ábyrgð á því að skráningargjöld séu greidd og mikilvægt er að senda kvittun á skraning@landsmot.is svo skráningin sé gild. Skráningargjaldið er kr. 16.500.

  • 30 hæstu einkunnir í tölti T1
  • 20 bestu tímarnir í 100m skeiði P2
  • 14 bestu tímarnir í 150m skeiði P3
  • 14 bestu tímarnir í 250m skeiði P1

16 ára aldurstakmark (árg. 2008) er í töltinu.

Sýningargreinar

  • Félögin skrá sína knapa eins og í öðrum gæðingaflokkum.
  • Ekki er tekið inn af stöðulistum.

Allar upplýsingar veitir mótsstjóri: 

Hilda Karen Garðarsdóttir
hilda@landsmot.is