Á landsþingi Landssambands hestamannafélaga haustið 2024, var samþykkt að A-flokkur ungmenna væri sýningargrein á landsmótum. Mótsstjórn LM2026 hefur ákveðið að bjóða uppá þessa grein á mótinu í sumar og einnig B-flokk áhugamanna.
Mótsstjórn hefur sett reglur um fyrirkomulag, framkvæmd og þátttökurétt knapa í þessum flokkum. Hestamannafélögin þurfa að bjóða upp á þessa flokka í sínum úrtökum til þess að eiga rétt á að senda fulltrúa til keppni í þeim á komandi landsmóti.
Að öðru leyti en fram kemur hér fyrir neðan fer val hrossa til þátttöku í þessum flokkum fram í gegnum úrtökur hestamannafélaganna samkvæmt lögum og reglum LH.
Sjá nánar í reglugerð um B-flokk áhugamanna.
Þátttökuréttur í A-flokki ungmenna miðast við fjölda félagsmanna sem skráðir eru í félagatali hestamannafélaga LH þann 15. apríl 2026. Aðildarfélög mega senda 1 keppanda fyrir hverja 250 félaga og svo framvegis.
Val hrossa til þátttöku í A-flokk ungmenna skal fara fram hjá félögunum eftir lögum og reglum LH um gæðingakeppni og úrtökur. Einungis keppnispör sem ná gildum árangri í úrtöku síns félags, í A-flokki ungmenna eru gjaldgeng til þátttöku í flokknum.