Komdu á Landsmót hestamanna á hólum í hjaltadal 2026 og taktu virkan þátt í ævintýrinu!
Landsmót hestamanna hafa í áranna rás verið borin uppi af óeigingjörnu framlagi sjálfboðaliða úr hestamannafélögum landsins. Sami eldmóður og hugsjón einkenna starfið í dag og í upphafi og margir sjálfboðaliðar gefa vinnu sína ár eftir ár. Gífurlegur undirbúningur liggur að baki þess að skipuleggja Landsmót og til að mæta kröfum nútímans um aðbúnað og skipulag þarf að geta þjónustað allt að 10.000 gesti. Þitt framlag er því gríðarlega mikilvægt og skiptir höfuðmáli til að gera umgjörð mótsins sem glæsilegasta.
Sjálfboðavinna á Landsmóti er góður vettvangur fyrir þá sem vilja kynnast öðru áhugafólki um hestamennsku og við vonum að sjálfboðaliðarnir okkar upplifi mótið sem skemmtilega og gagnlega lífsreynslu. Við kunnum sannarlega að meta framlag þitt og vonum að það geri gott Landsmót enn betra. Velkomin til starfa á Landsmóti 2026!
Sjálfboðaliðar sem taka þátt í Landsmóti vinna a.m.k. fjórar vaktir á meðan mótinu stendur. Þeir sem eru áhugasamir geta þó að sjálfsögðu tekið að sér fleiri vaktir því verkefnin eru næg. Hver vakt varir í 6 klukkustundir og er sjálfboðaliðum skipt niður í hópa sem fá síðan úthlutað ákveðið ábyrgðarsvið eða verkefni.
Fyrirkomulag vakta er enn í skipulagningu og verða þeir sjálfboðaliðar sem skrá sig til leiks látnir vita af fyrirkomulaginu um leið og það er ákveðið.
Leiðtogi sjálfboðaliðateymisins skipuleggur hvernig vöktum er útdeilt.
Ef þú vilt verða sjálfboðaliði á Landsmóti 2026 sendu okkur þá póst á netfangið landsmot@landsmot.is
Ef einhverjar spurningar vakna má alltaf senda fyrirspurnir, öllum tölvupóstum er svarað eins fljótt og auðið er.