Ræktunarbú

mbl.is / Styrmir Kári 2022
mbl.is / Styrmir Kári 2022
 

Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á landsmótum hestamanna og á LM2026 verður engin breyting þar á. Tilhögun sýninga verður með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði miðuð við 10 ræktunarbú, auk tveggja boðsbúa þiggi þau boðið. Ræktunarbúin eru á dagskrá mótsins fimmtudagskvöldið 9. júlí og mun áhorfendum verða boðið að velja bestu ræktunarbússýninguna.

Það ræktunarbú sem sigrar á fimmtudagskvöldi ávinnur sér þann heiður að koma fram á föstudagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku. Sýningartími á hvert bú er 5 mínútur. Útfærsla sýningar er alfarið á ábyrgð forráðamanna. Fótaskoðun verður viðhöfð og gilda reglur gæðingakeppni þar um, auk allra viðmiðana mótsins um heilbrigði og dýravelferð. Að lágmarki skulu 5 hross sýnd og þurfa þau að vera frá sama lögbýli, eða fædd meðlimum sömu fjölskyldu.

Þátttakendur velja tónlist sjálfir, skila inn texta og öðrum upplýsingum vegna sýningarrinnar og hafa samráð við þul hvernig búið skuli kynnt. Sýnendum býðst að nota risaskjá til kynningar á búinu á meðan sýningu stendur og einnig að senda inn efni á vef landsmóts.

Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar hlaut viðurkenninguna ræktunarbú ársins 2025 og er þeim boðin þátttaka auk keppnishestabús ársins sem var Strandarhöfuð.

Áhugasamir ræktendur senda umsókn inn til mótsstjórnar um að komast að í sýningu ræktunarbúa.