Viltu sýna þína ræktun á LM2026?

Frestur til að sækja um þátttöku í sýningu ræktunarbúa á Landsmóti hestamanna á Hólum í sumar, rennur út á miðnætti í kvöld, 16. janúar.

Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á landsmótum hestamanna og á LM2026 verður engin breyting þar á. Tilhögun sýninga verður með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði miðuð við 10 ræktunarbú, auk tveggja boðsbúa þiggi þau boðið. Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar hlaut viðurkenninguna ræktunarbú ársins 2025 og er þeim boðin þátttaka auk keppnishestabús ársins sem var Strandarhöfuð. Ræktunarbúin eru á dagskrá mótsins fimmtudagskvöldið 9. júlí og mun áhorfendum verða boðið að kjósa bestu ræktunarbússýninguna.

Allar nánari upplýsingar er að finna hér á vefnum og umsóknir skal senda á hilda@landsmot.is