Markaðstorg 2024

 Landsmót 2018

Glæsilegt markaðssvæði er hluti af því sem býr til skemmtilegan viðburð. Gestir Landsmóts segja í öllum rannsóknum sem gerðar hafa verið á mótunum, að ómissandi hluti heimsóknar á Landsmót sé að gera góð kaup á ýmiskonar varningi á meðan mótinu stendur.

Sett verður upp markaðstjald ofan Hvammsvallar þar sem gestir mótsins hafa greiðan aðgang að sýnendum í tjaldinu. Tjaldið er í heildina 825 fermetrar og þar af eru 495 sýningarfermetrar.

Í tjaldinu verður hefðbundið sýningarkerfi með básum. Áhersla verður lögð á að skapa líflega torgstemmingu á svæðinu fyrir gesti mótsins.

Verðskrá markaðstjalds 2024*:

  •  4 - 20 fm/ Verð 23.900 kr á fm2
  • 21 - 60 fm2 / Verð 21.900 kr á fm2
  • 60+ fm/ Verð 19.900 kr á fm2

*Öll verð eru fyrir utan VSK.

 Innifalið í leigu er:

  • Með hverjum bás að 20 m2  fylgja tveir vikupassar. Fyrir hverja 10 m2 umfram 20 m2 fæst einn miði á 50% afslætti af forsöluverði.
  • Sýningarkerfi
  • Merking á bás
  • Rafmagn fyrir minni  tæki eins og síma eða sjónvarp.
  • Þráðlaust net.

Hægt verður að kaupa auka rafmagnstengil á 16.500 kr + vsk.

Markaðstjaldið er opið frá 10 til 22.

Allar fyrirspurnir eða pantanir skulu sendar á netfangið:  einar.landsmot@fakur.is

Keppnisdagskrá Landsmóts 2024 hefst mánudaginn 1. júlí og lýkur dagskrá seinnipartinn á sunnudeginum 7. júlí. 

Miðað er við að verslun á markaðssvæði hefjist ekki seinna en miðvikudaginn 3. júlí og gert er ráð fyrir að opnunartími sé a.m.k. frá kl 10:00-20:00 3.-7. júlí.

Gerður verður skriflegur leigusamningur við alla söluaðila. 60% leigunnar greiðist í maí 2024 og 40% eigi síðar en 15. júní 2024. Notað verður kerfi frá Sýningakerfi ehf. Söluaðilar geta einnig leigt hjá þeim húsgögn svo sem borð, stóla, skápa o.fl., sjá www.syning.is. Þeir sem áhuga hafa á slíku hafi samband við Guðna Sigfússon hjá Sýningakerfi ehf. í síma 551 9977 eða á netfangið syning@syning.is.