Mikill áhugi er fyrir rafmagnsstæðum á Landsmóti hestamanna og hafa nú þegar selst rúmlega 500 rafmagnsstæði.
Vegna mikillar eftirspurnar hafa 43 ný rafmagnsstæði verið sett í sölu, en mikilvægt er að taka fram að ekki verða fleiri rafmagnsstæði sett í sölu eftir þetta. Þeir sem vilja tryggja sér rafmagnsstæði eru því hvattir til að ganga frá kaupum sem fyrst. Allar upplýsingar er að finna á
landsmot.is og
tix.is.
Af gefnu tilefni viljum við minna á að með hverjum seldum miða á Landsmót hestamanna fylgir frítt tjaldstæði án rafmagns. Almenn tjaldstæði þarf ekki að panta sérstaklega. Sjá má skýringarmynd sem sýnir hvar almenn tjaldsvæði verða staðsett á mótssvæðinu.

Landsmót hestamanna er einn stærsti viðburður hestamennskunnar á Íslandi og ljóst er að mikil eftirvænting ríkir fyrir mótinu.