Æfingatímar keppenda

Æfingartímar hestamannafélaganna hafa verið settir upp í töflu fyrir mótið. Skipulagðir æfingatímar verða í fjóra daga, 1. - 4. júlí. Keppni hefst svo sunnudagsmorguninn 5. júlí.

Við biðjum keppendur um að sýna tillitssemi, virða tímamörk og rýma völlinn þegar þeirra tími er liðinn.

Við minnum einnig á að allar upplýsingar fyrir knapa og aðstandendur þeirra má finna hér á heimasíðu mótsins undir flipanum KNAPAR í valstikunni.