Ásmundur og Hlökk stórglæsileg. Mynd Freydís Bergsdóttir
Við erum nú bara aðeins að melta það sem var að eiga sér stað hér á Landsmóti hestamanna. Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfða fengu hvorki meira né minna en 9,78 í aðaleinkunn fyrir tölt í A úrslitum. Sem er heimsmet, það hafa aldrei áður verið gefnar fjórar 10 fyrir sama atriðið.
Á eftir þeim voru þeir Jakob Svavar Sigurðursson og Skarpur frá Kýrholti og fóru þeir félagar í 9,17 sem er nú engar smá tölur heldur og í því þriðja voru þær Brynja Kristinsdóttir og Sunna frá Haukagili Hvítársíðu með 8,83 í aðaleinkunn.
|
Sæti
|
Keppandi
|
Heildareinkunn
|
|
1
|
Ásmundur Ernir Snorrason / Hlökk frá Strandarhöfði
|
9,78
|
|
2
|
Jakob Svavar Sigurðsson / Skarpur frá Kýrholti
|
9,17
|
|
3
|
Brynja Kristinsdóttir / Sunna frá Haukagili Hvítársíðu
|
8,83
|
|
4
|
Jóhanna Margrét Snorradóttir / Orri frá Sámsstöðum
|
8,39
|
|
5
|
Hulda Gústafsdóttir / Flauta frá Árbakka
|
7,83
|
|
6
|
Sara Sigurbjörnsdóttir / Dísa frá Syðra-Holti
|
7,61
|