Barnapartý!

Öllum keppendum í barnaflokki á Landsmóti hestamanna er boðið í partý í kvöld kl.19:00 í Skólahöllinni. Þar verður öllum keppendum boðið upp á hamborgara og gos. 

Mette Mannseth yfirreiðkennari Hólaskóla hittir keppendur um kl.19:30, óskar þeim til hamingju með árangurinn, gefur þeim heilræði og hvetur þau áfram. 

Tónhylur ásamt Maroni Birni mæta svo á svæðið um kl.19:45 og halda uppi stuðinu, allir velkomnir að kíkja í partýið!