Landsmót hestamanna verður ekki haldið án góðra samstarfsaðila og Ölgerðin er eitt þeirra fyrirtækja sem um árabil hefur staðið þétt við bakið á hestamönnum í mótahaldi.
Við getum nú glatt mótsgesti Landsmóts með þeim fréttum að Boli léttöl frá Ölgerðinni verður meðal þess sem gestir geta notið á Hólum í sumar. Landsmót og Boli munu í sameiningu umbreyta Skólahöllinni í skemmtilegt samkomurými með kúrekaþema þar sem Bolabarinn verður í aðalhlutverki.
Í Skólahöllinni verður notalegt að setjast niður, spjalla og njóta góðrar stemningar. Þar verður einnig svið og risaskjár, auk fjölbreyttrar dagskrár með kántrýtónleikum, trúbadorum, fótbolta á skjá, fræðsluerindum og fleiru sem kynnt verður nánar á næstunni.
Á myndinni má sjá Áskel Heiðar, framkvæmdastjóra Landsmóts 2026, ásamt Bergsveini Guðmundssyni, markaðsstjóra hjá Ölgerðinni.