Breytt fyrirkomulag á Brúnastöðum

Smá tilkynning til knapa frá hesthúsnefndinni um breytt fyrirkomulag í hesthúsinu á Brúnastöðum. Búið er að merkja 60 stíur fyrir millirðla sem knapar mega nýta yfir millirðlana. Einnig er búið að merkja um 40 stíur fyrir yfirlit kynbótahrossa svo það geti gengið sem best fyrir sig. 

Áfram er ætlast til þess að knapar taki sín hross úr stíunum þegar þau hafa lokið sínu hlutverki.  Minnum svo á að það má grípa í kústinn við hvert tækifæri sem gefst.

 Kveðja hesthúsnefnd.