Dagur menningar og ræktunar í Skagafirði - Dagskrá

Dagur menningar og ræktunar í Skagafirði – einstakt tækifæri til að kynnast hestinum og héraðinu

Sunnudaginn 12. júlí, að loknu Landsmóti hestamanna, gefst gestum einstakt tækifæri til að kynnast þeirri ríku hefð hrossaræktar og menningar sem Skagafjörður er þekktur fyrir. Þá verður haldinn Dagur menningar og ræktunar í Skagafirði, þar sem fjölmörg hrossaræktarbýli og menningarsetur víðs vegar um héraðið opna dyr sínar og bjóða gesti velkomna.

Markmið dagsins er að gefa gestum kost á að fræðast um íslenska hestinn, ræktunarsögu hans og það mikilvæga hlutverk sem Skagafjörður hefur gegnt í þróun og uppbyggingu hrossaræktar á Íslandi. Um leið gefst tækifæri til að kynnast menningararfi héraðsins, fólkinu sem þar býr og þeirri einstöku gestrisni sem sveitirnar eru þekktar fyrir.

Dagskráin hefst klukkan 11:00 með heimsóknum á bæi í nágrenni Hóla og Landsmótssvæðisins. Að því loknu verða opnir viðburðir á klukkustundarfresti á búum og menningarstöðum víðs vegar um Skagafjörð. Með þessu fyrirkomulagi geta gestir lokið dvöl sinni á Landsmóti, lagt af stað heim á leið og nýtt daginn til að heimsækja áhugaverða staði í héraðinu áður en ferðinni er haldið áfram.

Mörg af fremstu ræktunarbúum Skagafjarðar hafa þegar staðfest þátttöku sína. Þar má nefna Hof á Höfðaströnd, Neðri-Ás II (Lea Busch), Þúfur, Kálfsstaði, Nautabú/Hestklett, Bjarmaland/Hrímnishöllina, Varmalæk 1 (Guðmundur og Jóhanna), Miðsitju, Varmaland, Syðra-Skörðugil og Tunguháls II. Á þessum stöðum fá gestir innsýn í starfsemi búanna, ræktunina og kynnast hestum og mönnum.  Þá verður kynnt saga Kolkuós hrossanna niður við Kolkuós.

Jafnframt verða ýmsir merkir menningarstaðir opnir gestum. Þar á meðal Sögusetur íslenska hestsins á Hólum, en þar hægt að fræðast um sögu hestsins, tengsl hans við íslenskt samfélag og þann menningararf sem hefur mótast í kringum hestamennsku og búskap í gegnum aldirnar. Þá verður myndlistasýning í Nýjabæ á Hólum, þar sem þrjár myndlistakonur sýna verk sem eru innblásin af íslenska hestinum. Þá verður opin hús á Starrastöðum þar sem er gróðurhús með rósarækt og kaffihús, á Lýtingsstöðum þar sem má finna sögusetur íslenska fjárhundsins og torf hesthúsin og á Stórhól þar sem er bændamarkaður.  

Dagur menningar og ræktunar er því ekki aðeins viðburður fyrir áhugafólk um hross heldur fyrir alla sem vilja upplifa sögu, menningu og náttúru Skagafjarðar á lifandi hátt.

Fyrir þá sem vilja kynna sér enn frekar það sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða er að finna fjölbreyttar upplýsingar um gistingu, veitingastaði, sundlaugar, afþreyingu og áhugaverða áfangastaði á heimasíðu Markaðsstofu Skagafjarðar: visitskagafjordur.is

Skipuleggjendur hlakka til að taka á móti gestum og bjóða þeim að upplifa eftirminnilegan dag þar sem íslensk hrossarækt, menning og gestrisni Skagafjarðar verða í forgrunni. Fyrir þá sem sækja Landsmót er þetta kjörið tækifæri til að ljúka ferðinni með því að kynnast enn betur því héraði sem margir telja hjarta íslenskrar hestamennsku.

Opin hús – Hrossaræktarbú (stendur yfir í ca 2 klst)

-            Kálfsstaðir                        11:00

-            Nautabú, Hestklettur    11:00

-            Neðri-Ás II                        11:00

-            Hof á Höfðaströnd         12:00

-            Þúfur                                   12:00

-            Kolkuós                             12:00

-            Varmaland                        13:00

-            Syðra-Skörðugil               13:00

-            Varmilækur 1                                  14:00

-            Bjarmaland, Hrímnishöllin         14:00

-            Miðsitja                                             14:00  

-            Tunguháls II                                    14:00

Aðrir samstarfsaðilar:

-            Sögusetur íslenska hestsins     10:00 – 18:00

-            Starrastaðir  - rósarækt og kaffihús                       13:00 – 17:00

-            Lýtingsstaðir – sögusetur íslenska fjárhundsins og torf hesthúsin          13:00 – 17:00

-            Stórhóll - bændamarkaður                       13:00 – 17:00