Drög að dagskrá Landsmóts hestamanna komin á vefinn

Nú hafa fyrstu drög að dagskrá Landsmóts hestamanna á Hólum verið birt á vef mótsins. Þar má finna tímasetta keppnis- og sýningardagskrá fyrir mótið sem fram fer dagana 5.–11. júlí.

Mikilvægt er að hafa í huga að um drög að dagskrá er að ræða og geta því orðið breytingar á henni þegar nær dregur móti. Endanleg dagskrá verður uppfærð á vefnum eftir því sem hún tekur breytingum.

Við hvetjum alla keppendur, gesti og áhugafólk um íslenska hestinn til að kynna sér dagskrána og fylgjast reglulega með á landsmot.is þar sem nýjustu upplýsingar verða birtar.

Hlekkur á dagskránna er HÉR