Fyrstu drög að dagskrá Landsmót hestamanna sem mun fara fram á Hólum sumarið 2026 hafa verið birt á vef mótsins, landsmot.is.
Mótið mun hefjast sunnudaginn 5.júlí á forkeppni í barnaflokki á gæðingavelli og á kynbótavellinum byrja 4ra vetra hryssur. Mótinu lýkur svo laugardagskvöldið 11. júlí með pompi og prakt.
Á síðasta LH þingi var samþykkt að A-flokkur ungmenna væri sýningagrein á Landsmóti og hefur verið tekin sú ákvörðun að bjóða uppá þessa grein á komandi Landsmóti ásamt því að B-flokkur áhugamanna kemur einnig inn sem sýningargrein.
Óskað er eftir því að hestamannafélögin bjóði því uppá A-flokk ungmenna og B-flokk áhugamanna í sínum úrtökum til að eiga gjaldgenga fulltrúa í þessar greinar á komandi Landsmóti.
Helstu reglur varðandi þátttakendur í B-flokki áhugamanna (gæðingaflokkur 2) eru eftirfarandi:
- Knapi má EKKI hafa keppt í meistaraflokki í íþróttakeppni og gæðingaflokki 1 í gæðingakeppni á keppnisárinu.
- Val hrossa í gæðingakeppni B-flokk áhugamanna á Landsmóti (gæðingaflokkur 2) skal fara fram hjá félögunum eftir lögum og reglum LH um gæðingakeppni og úrtökur. Einungis keppnispör sem ná gildum árangri í úrtöku síns félags, í gæðingaflokki 2 eru gjaldgeng til þátttöku í flokknum.
- Miðast við aldur í fullorðinsflokki (22 ára og eldri).
- Öll félög mega senda 1 fulltrúa.
- Aðildafélög sem mega senda fleiri en einn fulltrúa í hefðbundinn flokk mega senda helmingi færri í áhugamannaflokkinn (1 keppanda á hvern 250 félaga o.s.frv.)
Nánari upplýsingar um hliðardagskrá, skemmtidagskrá og fleira verða birtar síðar. Fyrstu drög að dagskrá LM2026 má finna hér.