Sara og Dísa efstar í B úrslitum í tölti

Sara Sigurbjörnsdóttir og Dísa frá Syðra- Holti. Mynd Freydís Bergsdóttir
Sara Sigurbjörnsdóttir og Dísa frá Syðra- Holti. Mynd Freydís Bergsdóttir

Sara Sigurbjörnsdóttir og Dísa frá Syðra- Holti voru efstar í B úrslitum í Tölti með einkunnina 7,94 á eftir þeim komu þeir Hinrik Bragason og Hugur frá Hólabaki með 7,67, Hermann Arason og Náttrún Ýr frá Herríðarhóli með 7,28 þar á eftir. Viðar Ingólfsson og Sókrates frá Skáney með 7,17 og Ævar Örn Guðjónsson á Lilju frá Eystra Hóli með 7,06.

Sara Sigurbjönsdóttir tekur svo þátt í A úrslitum annað kvöld klukkan 21:30.