Konráð Valur og Kjarkur sigruðu 150 m skeið

Konráð Valur á Kjark og Sigurbjörn Bárðarson og Vökull. Mynd Freydís Bergsdóttir
Konráð Valur á Kjark og Sigurbjörn Bárðarson og Vökull. Mynd Freydís Bergsdóttir

Úrslit í 150 metra skeiði fóru svo að Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II voru fyrstir í mark á 13,84 sek. Þar á eftir voru Sigurbjörn Bárðarson og Vökull frá Tunguhálsi II á 14,13 sek og þriðju voru þeir Sigurður Vignir Matthíasson á Trygg frá Selfossi á 14,30.