EQUES knapagjafir afhentar á morgun kl.13:00

Afhending á knapagjöfum frá EQUES fyrir alla keppendur í barnaflokki fer fram á morgun, miðvikudag, kl.13:00 í Mathöllinni/Þráarhöll. Munið endilega eftir miðanum sem ykkur var afhentur eftir að forkeppni lauk. 

Spiluð verður létt tónlist, settur upp myndakassi og fleira skemmtilegt ásamt því að Rasmus Möller Jensen eigandi EQUES afhendir öllum þátttakendum í barnaflokki gjafir.