Gjafaleikur Prestige og Landsmóts

Ef þú ert búin að kaupa þér miða á Landsmót hestamanna 2026, átt eftir að kaupa þér miða á Landsmót eða ert að hugsa um að kaupa þér miða á Landsmót, þá gæti það átt eftir að borga sig því þú gætir unnið hágæða Brilliante Prestige hnakk. Allir miðahafar Landsmóts eiga möguleika á að vinna sér inn þennan hnakk. Dreginn verður út einn heppinn miðahafi Landsmóts 2026 á föstudaginn nk. og hnakkurinn afhentur við hátíðlega athöfn á keppnivelli. 

Prestige Italia hefur hannað og framleitt hestavörur frá árinu 1974 og hefur fengið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir gæði og hönnun og þá sérstaklega hnakka. Prestige býður uppá hnakkagerðir sem eru sérstaklega hannaðar með íslenska hestinn í huga og færir þannig einstök gæði sín inn á íslenska markaðinn.

Vinningshnakkurinn Brilliante hefur nýja AS-X hönnun sem byggir á byltingarkenndu hnakkvirki sem fylgir hreyfingum herðablaða hestsins án þess að skerða stöðugleika, ásamt að stuðla að jafnri þyngdardreifingu. Þetta er einstaklega vandaður hnakkur fyrir þá sem vilja hámarka hreyfigetu og afköst hestsins.

Hnakkurinn er gefin í samstarfi við Hestbak sem er íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í hnakkamátun og er umboðsaðili fyrir Prestige-hnakka á Íslandi. Fyrirtækið býður upp á fjölbreytt úrval hnakka og annars reiðbúnaðar, ásamt faglegri ráðgjöf til að finna réttan búnað fyrir bæði hest og knapa.

Það er því ljóst að til mikils er að vinna með miðakaupum á Landsmót hestamanna 2026.