Guðmari Hólm Ísólfssyni Líndal með Öder bikarinn. Mynd Kolla Gr
Eftir að hafa tekið við verðlaunum fyrir fyrsta sæti fyrst í B flokki ungmenna og síðan A flokki þá var Guðmari Hólm Ísólfssyni Líndal veittur Öder bikarinn sem er farandbikar sem þau Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir létu gera til minningar um kæran vin; Einar Öder Magnússon sem lést árið 2015 eftir snarpa baráttu viỡ krabbamein.
ODER BIKARINN er veittur framúrskarandi pari; ungum reiðmanni og hesti hans, sem standa fyrir glæsileika og fegurð í íslenskri reiðmennsku; faglegur og prúður knapi ásamt vel tömdum, heillandi hesti sem saman leysa verkefni sitt af ástríðu og prýði!
Markmið gefendanna var að bikarinn héldi arfleifð Einars á lofti og væri handhafanum innblástur og hvatning til að halda áfram á braut framúrskarandi afreka.
Einar var í fararbroddi íslenskrar hestamennsku frá fyrstu tíð og lagõi mikið af mörkum til stöðu íslenska hestsins í dag, bæði hér heima og erlendis. Hestamennskan var honum í blóð borin og var hann á því sviði fagmaður fram í fingurgóma. Fyrir Einari snérist reiðmennskan um tengslin á milli hests og knapa. Hann leit á reiðmennskuna sem listform og lagði mikið uppúr því að hesturinn nyti sín; eðlilegur og óþvingaður. Hann talaõi oft um þetta fínlega jafnvægi á milli ótaminnar orku hestsins og virðingu hans og vilja til að vinna með knapanum. Hann var talsmaður þess að ganga aldrei of nærri hestinum, hann væri í eðli sínu lifandi listaverk sem nyti sín best á eigin forsendum.
Verkið sem er skúlptúr úr silfri er hannað og smíðað af skartgripahönnuðunum Sigurði Inga Bjarnasyni og Kötlu Guðmundsdóttur hjá Sign Skartgripir. Þau lögðu hug sinn og hjarta í sköpunarferlið, með þessari fallegu útkomu!
Þetta er í þriðja skiptið sem ÖDER BIKARINN er veittur á Landsmóti, en árið 2024 hlutu þeir Matthías Sigurðsson og Tumi frá Jarðbrú bikarinn og árið 2022 hlutu Björg Ingólfsdóttir og Kjuði frá Dýrfinnustöðum heiðurinn.
Auk þess að varðveita ÖDER BIKARINN í eitt ár fær handhafinn innrammaða mynd af listaverkinu til eignar eftir að því er skilað.
Listi yfir þá sem hljóta ÖDER BIKARINN, er birtur á vef Pur Cheval, www.purcheval.com
Við óskum Guðmari innilega til hamingju með þennan magnaða árangur.