Guðmar og Grettir sigra B flokk ungmenna

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Grettir frá Hólum Myndir: Kolla Gr.
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Grettir frá Hólum Myndir: Kolla Gr.

Síðasti keppnisdagur Landsmóts hestamanna á Hólum hófst á A úrslitum í B flokki ungmenna, sem lauk rétt í þessu.

Það voru þeir Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Grettir frá Hólum sem sigruðu með aðaleinkunn 8,87. Í öðru sætinu voru þær Elva Rún Jónsdóttir og Björt frá Feti með 8,80 og í því þriðja voru þau Guðný Dís Jónsdóttir og Goði frá Garðabæ. 

Innilegar hamingjuóskir Guðmar með þennan frábæra árangur.

 

Sæti

Keppandi

Heildareinkunn

1

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal / Grettir frá Hólum

8,87

2

Jón Ársæll Bergmann / Viskusteinn frá Íbishóli

0,00

3

Elva Rún Jónsdóttir / Björt frá Feti

8,80

4

Guðný Dís Jónsdóttir / Goði frá Garðabæ

8,76

5

Eik Elvarsdóttir / Valur frá Stangarlæk 1

0,00

6

Ída Mekkín Hlynsdóttir / Marín frá Lækjarbrekku 2

8,72

7

Helgi Freyr Haraldsson / Hrynjandi frá Strönd II

8,61

8

Snæfríður Ásta Jónasdóttir / Stimpill frá Strandarhöfði

8,56

9

Þórgunnur Þórarinsdóttir / Hetja frá Hestkletti

8,48