Gísli Gíslason og Mette Mannseth taka við Orrabikarnum frá Önnu Berglindi Indriðadóttur
Hannibal frá Þúfum stóð efstur stóðhesta með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti hestamanna 2026. Með glæsilegum afkvæmahópi staðfesti Hannibal sterka stöðu sína sem kynbótahestur.
Við hátíðlega verðlaunaafhendingu leiddu ræktendur og eigendur Hannibals, Mette Mannseth og Gísli Gíslason, afkvæmahóp hans inn á völlinn og veittu viðtöku Orrabikarnum, sem veittur er þeim stóðhesti sem stendur efstur á Landsmóti með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.
Orrabikarinn er gefinn til minningar um hinn landsþekkta stóðhest Orra frá Þúfu, sem markaði djúp spor í íslenskri hrossarækt og átti eftir að hafa víðtæk áhrif á ræktun íslenska hestsins bæði hér á landi og erlendis. Það er því mikill heiður fyrir ræktendur og eigendur að hljóta þessa virtu viðurkenningu. Það var Anna Berglind Indriðadóttir frá Þúfu í Landeyjum sem afhenti bikarinn fyrirhönd fjölskyldunnar.
Árangur Hannibals frá Þúfum endurspeglar markvissa ræktunarstarfið sem að baki honum stendur og undirstrikar gæði afkvæma hans, sem hafa vakið athygli fyrir jafna og framúrskarandi eiginleika.
Landsmót hestamanna óskar Mette Mannseth og Gísla Gíslasyni innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.
1. Verðlaun fyrir afkvæmi – Stóðhestar 1. – 10. sæti:
- sæti: Hannibal frá Þúfum
- sæti: Skarpur frá Kýrholti
- sæti: Veigar frá Skipaskaga
- sæti: Pensill frá Hvolsvelli
- sæti: Útherji frá Blesastöðum 1A
- sæti: Safír frá Mosfellsbæ
- sæti: Kjuði frá Dýrfinnustöðum
- sæti: Rauðskeggur frá Kjarnholtum I
- sæti: Vökull frá Efri-Brú
- sæti: Dofri frá Sauðárkróki