Háskólinn á Hólum og Skagfirðingur innsigla samstarf um Landsmót 2026

Hólmfríður Sveinsdóttir rektor Háskólans á Hólum og Elvar Einarsson formaður Skagfirðings innsigla s…
Hólmfríður Sveinsdóttir rektor Háskólans á Hólum og Elvar Einarsson formaður Skagfirðings innsigla samstarfið

Landsmót hestamanna mun fara fram á starfssvæði hestafræðideildar Háskólans á Hólum.  Það gefur því augaleið að náið samstarf þarf að vera milli háskólans og mótsins.  Þetta samstarf hefur verið afar farsælt og til að staðfesta það og færa öll tæknileg atriði á blað gengu þau Hólmfríður Sveinsdóttir rektor Háskólans á Hólum og Elvar Einarsson formaður hestamannafélagsins Skagfirðings frá samningi um afnot af mótssvæðinu og mannvirkjum á dögunum, en Skagfirðingur mun sjá um framkvæmd Landsmóts á Hólum í sumar.  Það er mótinu ómetanlegt að vera í þéttu og góðu samstarfi við Háskólann á Hólum og það fagfólk sem þar starfar og að sama skapi er það von þeirra sem standa að Landsmóti að það muni efla Hóla enn frekar sem miðstöð menntunar og fagmennsku í reiðmennsku og umsjón íslenskra hestsins, en aðstaða til mótahalds á Hólum er klárlega á pari við það besta sem þekkist hérlendis.