Elin Holst, Ásmundur Ernir Snorrason og Brynja Kristinsdóttir. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Félag Tamningamanna (FT) veittu eftirfarandi heiðurviðurkenningar á Landsmót Hestmanna 2026 á Hólum í Hjaltadal.
Reiðmennskuverðlaun FT
Reiðmennskuverðlaun FT eru veitt á Landsmótum. Verðlaunað er fyrir framúrskarandi reiðmennsku og framkomu með hesta sína, hvort sem er í keppnisgreinum eða á kynbótasýningum mótsins. Að öll framkoma sé til fyrirmyndar innan sem utan vallar, gagnvart hestum, starfsfólki og keppendum. Hestar skulu vera vel uppbyggðir og þjálfaðir.
Brynja Kristinsdóttir hlýtur að þessu sinni Reiðmennskuverðlaun FT
Brynja er afar prúður knapi og kemur vel undirbúin til leiks.
Hún sýnir fagmennsku, yfirvegun og metnað í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur.
Hún átti glæsilegar sýningar á kynbótabrautinni sem og í töltkeppni mótsins á Sunnu frá Haukagili á Hvítársíðu.
Reiðmennskan er falleg og sanngjörn og einkennist af nettum ábendingum og stöðugu sæti. Í sýningum hennar skín í gegn öryggi, einbeiting, kraftur og samhljómur knapa og hests, sem endurspeglar vandaða þjálfun og góða reiðmennsku.
Hún ríður af sanngirni, virðingu og næmni og er fyrirmynd góðrar reiðmennsku
Brynja sýnir ávallt kurteisi og prúðmennsku, jafnt innan vallar sem utan, og er öðrum keppendum til fyrirmyndar.
Brynja er sannarlega verðugur handhafi Reiðmennskuverðlauna FT.
Innilegar hamingjuóskir með Reiðmennskuverðlaun FT, Brynja !
FT Fjöðrin
FT Fjöðrin er veitt af Félagi Tamningamanna fyrir ákveðna sýningu á einum hesti sem
uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
Reiðfærni þess sem FT fjöðrina hlýtur skal einkennast af léttleika, lipurð og samspili þar
sem saman fer einstök útgeislun og jafnvægi. Knapi og hestur ljóma af heilbrigði, krafti
og gleði.
Verðlaunin eru veitt fyrir einstaka útgeislun knapa og hests. Hesturinn sé sjálfberandi,
sterkur og mjúkur. Reiðmennska einkennist af samspili og léttleika.
Ásmundur Ernir Snorrason hlýtur FT-fjöðrina fyrir glæsilega sýningu sína á
gæðingnum Hlökk frá Strandarhöfði í tölti meistara, þar sem þau fóru sannarlega á
kostum.
Einstök útgeislun, kraftur og fas einkennir þetta par.
Hlökk er viljagammur sem leggur sig alla fram í verkefnið með knapa sínum og er þeirra
samspil frábært.
Saman spila þau á völlinn sitt leikandi lag með kraftmikilli og faglegri sýningu.
Innilega til hamingju Ási með FT fjöðrina.
Elin Holst hlýtur FT fjöðrina fyrir sýningu sína á glæsihryssunni Hugsýn frá
Ketilsstöðum í 6 vetra flokki hryssna.
Sýningin þeirra einkenndist af frábæru samspili þar sem þær ljóma báðar af gleði.
Hryssan tilbúin að taka á af fullum afköstum, bera sig fallega á hægu tölti en alltaf tilbúin
að slaka á. Hugsýn ber knapa sínum og þjálfara gott vitni.
Léttleiki, fas, kraftur og jafnvægi !
Elin er fyrirmyndar knapi og áttu þær Hugsýn einnig fallega sýningu í 4v flokknum á
LM2024, sem endurspeglar góða sanngjarna reiðmennsku þar sem hryssan heldur
áfram að bæta sig.
Innilegar hamingjuóskir með FT fjöðrina Elin !