Safír og Jakob Svavar.
Heimsmethafinn Safír frá Laugardælum og Jakob Svavar Sigurðsson héldu sömu aðaleinkunn 9,13 og með 8,83 fyrir sköpulag og 9,28 fyrir hæfileika. Safír er undan Þráni frá Flagbjarnarholti og móðirin er Skart frá Laugardælum. Ræktandi er Malin Widarsson og eigendur Anja Egger-Meier og Fákshólar ehf.
Næstur á eftir Safír var Agnar frá Margrétarhofi og Þorgeir Ólafsson með 8,81 í aðaleinkunn, 8,71 fyrir sköpulag og 8,87 fyrir hæfileika. Agnar er undan Ölni frá Akranesi og móðirin er Garún frá Garðshorni á Þelamörk. Ræktendur og jafnframt eigendur eru Margrétarhof hf.
Í því þriðja var Gauti frá Vöðlum og Teitur Árnason. Gauti er undan Glað frá Prestsbakka og Nótt frá Oddsstöðum I. Glaður hlaut 8,79 í aðaleinkunn, 8,42 fyrir sköpulag og 8,87 fyrir hæfileika. Ræktandi er Margeir Þorgeirsson og eigendur eru Anja Egger-Meier og Kronshof GbR.