Hesthúspláss á Hólum:
Landsmót hefur nú sent öllum formönnum hestamannafélaganna bréf varðandi skipulag hesthúsamála á mótssvæðinu á Hólum. Í bréfinu kemur fram að dagplássum í hesthúsinu Brúnastöðum verði úthlutað til hestamannafélaganna eftir fjölda félagsmanna sem hvert félag hefur rétt á að senda á landsmót. Sjá nánari upplýsingar undir flipanum knapar - hesthús hér á heimasíðunni.
Það verður á ábyrgð hvers hestamannafélags að hagræða sínum stíum, eins og það telur best, sem það fær úthlutað.
Reikna má með að þetta fyrirkomulag verði á meðan forkeppnin á sér stað en eftir hana má vænta annars skipulags þar sem rýmkar töluvert í hesthúsunum eftir forkeppni, sú útfærsla verður kynnt formönnum félaganna þegar nær dregur.
Hesthúsapláss utan mótssvæðis:
Lagt er til að allir hestar séu með hesthúsapláss utan mótssvæðis. Skipuleggjendur Landsmóts hafa tekið saman lista yfir þau hesthúsapláss í Skagafirði sem skagfirskir hestamenn hyggjast bjóða keppendum án endurgjalds.
Margir eru nú þegar búnir að finna sér pláss en ef einhver er í vandræðum má senda okkur tölvupóst á ingunn@landsmot.is og reynt verður eftir bestu getu að aðstoða.
Með kærri kveðju,
Hesthúsnefnd