Smáforritið HorseDay hefur verið í mikilli þróun síðustu árin og sér HorseDay alfarið um niðurstöður hestamóta hérlendis. HorseDay hefur tekið við af gömlu góðu Landsmótskránni sem ekki er lengur gefin út á prenti en í smáforritinu er hægt að finna allar upplýsingar um landsmótið á einum stað.
Þeir Áskell Heiðar Ásgeirsson framkvæmdastjóri LM og Oddur Ólafsson framkvæmdastjóri HorseDay skrifuðu undir samstarfssamning vegna mótsins á Hólum í sumar.
Áskell Heiðar segir að samstarfið undirstriki það að þjónusta við gesti, knapa og aðstendendur sé höfð í fyrirrúmi og tryggi að allt upplýsingastreymi frá mótinu komi í rauntíma til notanda smáforritsins, hvort sem þær varða niðurstöður keppni, kynbótasýninga, dagskrá eða tilkynningar.
„Við hjá HorseDay hlökkum mikið til að vera hluti af Landsmóti í sumar. Okkar markmið er að miðla skýrum og aðgengilegum upplýsingum og gefa fólki betri innsýn í mótið, hvort sem það er á staðnum eða fylgist með að heiman. Í vetur höfum við verið að þróa og prófa skemmtilega nýjung sem kallast Brekkudómarinn. Með henni geta áhorfendur tekið virkan þátt í mótinu með því að dæma sýningar í fullorðinsflokkum. Það gerir upplifunina lifandi, spennandi og færir fólk enn nær keppninni", sagði Oddur Ólafsson við undirskriftina.